07.02.2012 21:24
Búnaður sýndur á 112 deginum 2004.
Í tilefni af einn,einn,tveir deginum næstkomandi laugardag 11. febrúar, verður opið hús í Rósubúð, húsnæði Björgunarsveitarinnar Dagrenningar Hólmavík.
Kjörið tækifæri er til þess að kynnast starfi sveitarinnar og tækjabúnaði. Kaffi verður á könnunni og rjómavöfflur á borðum.
Sýndar verða myndir úr starfi og leik, nýjar sem gamlar. Vonumst við til að sjá sem flesta á laugardaginn n.k. milli kl.14 og 18.
Bílafloti viðbragðsaðila á Hólmavík 2004.
05.02.2012 19:40
Nemendur hlusta andaktugir á leiðbeinanda sinn
Um nýliðna helgi stóð yfir hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu námskeiðið Leitartækni.
Leiðbeinandi var Þórarinn Gunnarsson en hann kemur frá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík .
Tíu félagar sóttu námskeiðið og lærðu þeir allt milli himins og jarðar um leitaraðferðir, og annað tengt tíndu fólki og þar á meðal sporarakningar.
Bæði var um bóklegt nám að ræða og verklegar æfingar. Í lok námskeiðs var próf sem allir nemendurnir stóðust með sóma.
18.01.2012 16:02
Söfnunarkar Björgunarsveitarinnar merkt í bak og fyrir svo fólk ætti ekki að misskilja tilgang þess.
Um árabil hafa velunnarar Björgunarsveitarinnar verið duglegir að styrkja sveitina með einnota skilagjaldsumbúðum og er það þakkarvert.Björgunarsveitin er núna komin með söfnunarkar við hús Sorpsamlagsins við Skeiði Hólmavík auk kars sem staðsett er við Rósubúð, hús Björgunarsveitarinnar.
Er það von forsvarsmanna sveitarinnar að þetta auðveldi íbúum svæðisins áframhaldandi rausnaskap við Björgunarsveitina og að sem fæstar flöskur og dósir fari í ruslið.
Söfnunarkar staðsett Hleynar megin við Rósubúð
18.01.2012 12:52
Rýnt í kortin á síðasta námskeiði sveitarinnar.
Daganna 3. til 5. febrúar n.k. verður haldið námskeiðið Leitartækni. Námskeiðið hefst kl. 19 á föstudegi og því líkur kl. 18 á sunnudegi. Frekari upplýsingar er hægt að fá á vef Landsbjargar 15.01.2012 12:30
Mikið mæðir á Nissan Patrol sveitarinna þessa dagana. Hann er vel búinn tækjum á 44" dekkjum með glussaspili og með sjúkrabúnað, þ.m.t. sjálvirku hjartastuðtæki.
Laugardagur 14. janúar kl. 19:00Hjálparbeiðni frá vegfaranda í vandræðum vegna ófærðar á Þröskuldum.
Tveir menn frá Dagrenningu fóru til hjálpar á Patrol sveitarinnar. Þegar til kom reyndust tveir aðrir bílar einnig fastir á svæðinu. Öllum hjálpað úr ófærðinni niður í Gautsdal og haldið heim.
Klukkan 21:12.
Fimmtán mínútum eftir lok verkefnis kom næsta hjálparbeiðni í gegnum neyðarlínuna og þá einnig vegna ófærðar á Þröskuldum en leiðin er merkt ófær á vef Vegagerðarinnar og ekki rudd á laugardögum. Á leið heim aftur var vegfarendum á leið upp Arnkötludal snúið við og bent á leiðina suður Strandir, sem þótti sjálfsagt mál af þeirra hálfu.
Seinna verkefninu lauk kl. 22:40
Upplýsingaskilti voru sett upp síðasta haust sitt hvoru megin leiðarinnar um Arnkötludal og Gautsdal um Þröskulda. Þau ættu að sýna vindhæð og hitastig og hvort leiðin sé ófær. Standa þau einhverra ástæðna vegna ótengd engum til gagns.
11.01.2012 22:10
Patrol Björgunarsveitarinnar Dagrenningar við góð skilyrði.
Tvö útköll voru hjá Björgunarsveitinni í gær þann 10. janúar. Annars vegar var um að ræða vegfarendur sem fastir voru í snjó á Jepplingi á veginum um Arnkötludal. Hjálparbeiðnin kom laust eftir miðnætti og einum og hálfum tíma síðar var komið til Hólmavíkur með ferðalangana. Þess má geta að lélegt símasamband var á þeim stað þar sem bíllinn sat fastur, en tókst að senda hjálpabeiðni með SMS skilaboðum.
Hins vegar var jeppi fastur í Norðdal enn hann var að koma að vestan, en Steingrímsfjarðarheiðin var skráð ófær. Nokkuð tók á að komast upp Norðdal að bílnum. Hleypa varð úr dekkjunum niður í 4 pund og var góður kúludráttur á Patrol Björgunarsveitarinnar. Hjálparbeiðnin barst kl 20:45 og var komið í hús aftur kl. 23:00
11.01.2012 21:33
Eftirtalin fyrirtæki og einstaklingar styrktu flugeldasýningar
Björgunarsveitarinnar á gamlárskvöld og þrettándanum.
Björgunarsveitin Dagrenning þakkar þeim stuðninginn og einnig
þeim aðilum sem keyptu flugelda og á annann hátt styrktu
sveitina á umliðnu ári.
Arion Banki
Bjartur
Björn Halldórs Sverrisson
Fiskmarkaður Hólmavíkur
Gámaþjónusta Hólmavíkur
Hársnyrtistofa Heiðu
Hlökk
Hólmadrangur
Jónína Hólmfríður Pálsdóttir
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
KK Vélar
Kópnes
Lovísa
Sjóvá
Sparisjóður Strandamanna
Strandabyggð
Strandafrakt
VÍS
Æður
GLEÐILEGT ÁR
21.12.2011 23:05
FLUGELDASALA
FLUGELDASALA BJSV. DAGRENNINGAR HÓLMAVÍK VERÐUR Í BJÖRGUNARSVEITARHÚSINU RÓSUBÚÐ HÖFÐAGÖTU 9.
(gengið inn frá Hlein)
OPIÐ:
Fimmtudag 29. des. kl.
14.00 - 20.00
Föstudag 30. des. kl.
14.00 - 22.00
Gamlársdag 31. des. kl. 10.00 - 15.00
Áramótabrenna verður á Víðidalsárgrundum á
Gamlársdag kl.18:00 og flugeldasýning kl.18:20
Flugeldasala
björgunarsveitarinnar Dagrenningar á þrettándanum er frákl.
15-18.
Flugeldum verður
skotið á loft frá hafnarsvæðinu kl.20.00
BJÖRGUNARSVEITIN DAGRENNING
ÓSKAR ÖLLUM GLEÐILEGS ÁRS OG ÞAKKAR STUÐNINGINN Á LIÐNUM ÁRUM
21.12.2011 12:46

Vinnukvöld 21.12.2011 kl.20.00 i kvöld.Farið verður i uppsetningu flugeldasölu
kv Siggi
19.11.2011 21:46
Félagar Björgunarsveitarinnar Dagrenningar Hólmavík í lok námskeiðs.
Nýlokið er hjá Björgunarsveitinni námskeið í Ferðamennsku og rötun.
Leiðbeinandi var Ingólfur Haraldsson frá Björgunarskólanum. Átta félagar sveitarinnar drukku í sig fræðin um kort og áttavita, GPS tæki ásamt ferðamennskufræðum.
"Og komið því svo inn í hausinn á ykkur!!"
Stefnan tekin á kortinu úti á mörkinni.
16.11.2011 20:51
Sólheimajökull séður af leitarsvæðinu (mynd Ágúst Óskar)
Björgunarsveitin Dagrenning Hólmavík sendi fimm menn til leitarinnar sem stóð yfir af sænskum manni, á og við Sólheimajökul. Lagt var af stað frá Hólmavík undir kvöld á föstudag og komið að Skógum eftir miðnættið. Þrír af okkar mönnum voru sendir til leitar á svæði S.A af Sólheimajökli en tveir voru skipaðir til leitar á fjórhjólum sem með í för voru, vestur af Jökulsá á Sólheimasandi. Maðurinn fannst laust fyrir hádegið á jöklinum og tygjuðu okkar menn sig til brottfarar og komu þeir heim eftir sólahrings úthald, reynslunni ríkari.Leitarsvæðin voru fjölbreytileg og hrikaleg (mynd Ágúst Óskar)
09.11.2011 22:25
Föstudaginn 18. nóvember n.k. verður á vegum Björgunarskólans haldið námskeiðið ferðamennska og þann 19. verður Rötun.Þáttakendur skrái sig á landsbjorg.is eða hafi samband við formann eða ritara sveitarinnar.(sjá hér til hliðar undir "stjórn")
Áhugasamir nemendur í Rósubúð.
09.11.2011 13:08
Sala á Neyðakallinum fór fram um síðustu helgi.
Á föstudaginn vorum við í anddyri Kaupfélagsins og um kvöldið gengum við í hús á Hólmavík. Á sunnudaginn vorum við síðan aftur í Kaupfélaginu og óhætt er að segja að Strandamenn og aðrir sem á vegi okkar urðu, tóku þessari fjáröflun vel og hafi bestu þakkir fyrir.

Sigurður formaður Dagrenningar selur hér Hólmvískri blómarós neyðarkallinn.
02.11.2011 15:00

Vegna ófærðar hefur verið óvenju erilsamt hjá björgunarsveitinni undanfarna daga. Frá sunnudagskvöldinu síðasta hafa komið fimm útkallsbeiðnir í gegnum Neyðarlínuna. Bílum í tugatali var hjálpað af þröskuldum þessa daga og einnig af Steingrímsfjarðarheiði. Þröskuldar hafa verið lokaðir frá því á sunnudagskvöld en fólk leggur samt á leiðina jafnvel þó það þurfi að sveigja fram hjá lokunarmerkingum.
24.03.2011 18:52
Aðalfundarboð
Aðalfundur Björgunarsveitarinnar Dagrenningar verður haldinn
sunnudaginn 3. apríl n.k. í Rósubúð Höfðagötu 9.
kl. 17:30
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
